Frá leiðangrinum í Eldey

Þann 20. janúar 2008 var leiðangur farinn til Eldeyjar en tilgangur ferðarinnar var að koma upp myndavélabúnaði á eyjunni sem senda átti myndefni frá eyjunni allan sólarhringinn. Verkefnið var samvinnuverkefni Reykjanesbæjar og Hitaveitu Suðurnesja. Eyjan er friðuð og fengu leiðangursmenn leyfi Umhverfisstofnunar til fararinnar. Það var Njarðvíkingurinn Jakob Ólafsson, flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni sem fór fyrir áhöfn þyrlunnar Steinríks sem flutti leiðangurinn, átta manns, út í Eldey..

Ferðasaga | Myndband

Hugmyndin um vefmyndavélina er ekki ný af nálinni. Þorsteinn Erlingsson, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ og fyrrum skipsstjóri hafði í mörg ár látið sig dreyma um að gera súluna í Eldey aðgengilega á þennan máta. Það hefur Árni Johnsen, alþingismaður og fjórfaldur Eldeyjarfari, einnig gert. Sigurður Harðarson var fenginn til verkefnisins en hann hefur mikla reynslu af því að setja upp fjarskiptabúnað við erfiðar aðstæður. Hann hefur komið upp endurvörpum fyrir fjarskipti í hæstu tindum og á stöðum sem eru gjörsamlega ófærir öðruvísi en með þyrlu. Verkefnið í Eldey er reyndar fyrsta verkið sem Sigurður vinnur sem felst í að senda út sjónvarpsefni.

Smíðað var sérstakt hús utanum myndavélina og sendibúnaðinn. Húsið er með mjög bröttu þaki sem á að koma í veg fyrir að súlan geti sest á þakið. Myndavélin er í kvistglugga sem er einnig með þannig halla að drit úr fuglinum á ekki að geta sest á glerið. Þá er í húsinu sjónvarpssendir og annar fjarskiptabúnaður fyrir myndavélina. Myndavélin og sendirinn eru síðan drifin áfram með rafgeymum sem sólarorkuspeglar sjá um að hlaða. Gert er ráð fyrir að endurnýja þurfi rafgeymana eftir um fimm ár. Að ári vilja aðstandendur verkefnisins koma fyrir annarri myndavél í húsinu í Eldey, auk þess sem hljóðnemi verður þá settur upp sem mun koma garginu í súlunni um heimsbyggðina alla.

Ekki gekk hnökralaust að koma myndefninu í land en í ljós kom að geisli frá vélinni var of hátt stilltur. Því var annar leiðangur farinn í eyna í desember 2008 þar sem sendingin var leiðrétt.

Frá uppsetningu myndavélar | Myndband 1

Frá uppsetningu myndavélar | Myndband 2

Leiðangursmenn voru að loknu verki komnir í hóp þeirra u.þ.b. tuttugu einstaklinga sem komið hafa komið í Eldey frá því hún var fyrst klifin árið 1896. Síðast var farið í Eldey 1982, þannig að þessi stærsta súlubyggð í heimi getur ekki sagt að hún hafi orð á sér fyrir að verða fyrir átroðningi ferðamanna.

Ferðamenn munu hins vegar verða tíðir gestir í eyjunni um ókomin ár þar sem þeir geta heimsótt Eldey og fylgst með fuglalífi Súlunnar í beinni útsendingu.

 

dacoda.is